Ertu andvaka og trufla verkir svefninn?

Leitað er að fólki í viðtalsrannsókn á svefnvanda, þar sem bæði svefnleysi og verkir trufla svefn þrisvar í viku eða oftar og hafa gert það í meira en 3 mánuði. Einstaklingar með sjúkdóma sem geta truflað svefn eins og  kæfisvefn eða krabbamein geta því miður ekki tekið þátt.

Rannsóknin hefur fengið leyfi frá Vísindasiðanefnd. Númer leyfis frá Vísindasiðanefnd er VSN2501010.

Markmið rannsóknarinnar:

Svefnleysi (e. insomnia) og verkir eru hvort tveggja algengar svefntruflanir og eru stundum til staðar samtímis. Það er vitað að svefnleysi getur aukið verki og að verkir geta truflað svefn, en það skortir dýpri þekkingu á sambandi svefnleysis og verkja.

Tilgangur rannsóknar er að auka skilning og þekkingu á tengslum svefnleysis og verkja frá sjónarhóli þeirra sem hafa reynslu af þessum svefnvanda. Einnig að kanna reynslu þátttakenda af meðferðum við svefnvandanum.

 

Niðurstöðurnar munu vonandi bæta þekkingu og vitund um verkjasvefnleysi. Lokatakmarkið er svo að bæta greiningu og meðferð hjá fólki með verkjasvefnleysi og bæta þannig heilsu þess og lífsgæði.

Skráðu þig ef þig langar að taka þátt í rannsókn og við sendum þér upplýsingar.

https://redcap.link/1nzundz1

CATEGORIES:

Fréttir

Tags:

Comments are closed